23.06.2010 12:53
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram laugardaginn 21. ágúst næstkomandi. Í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2010 er hægt að hlaupa til góðs og geta hlauparar tengt sig ákveðnu líknarfélagi og óskað eftir að heitið sé á þá. Hægt er að tengja sig góðgerðarfélögunum um leið og skráning fer fram eða á "mínum síðum" á síðu hlaupsins http://www.reykjavikurmarathon.is/reykjavikurmaraton . Ekki er mögulegt að skipta um góðgerðarfélag eftir að söfnun er hafin. Viljum við hvetja þá félagsmenn og velunnara sem ætla að hlaupa í ár að styðja CP félagið. Skráningargjöld í hlaupið hækka 1. júlí og er því gott að vera tímanlega með skráninguna.
Með kveðju,
Með kveðju,
Klara Geirsdóttir formaður félags CP á Íslandi
Flettingar í dag: 16
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 173
Gestir í gær: 34
Samtals flettingar: 271695
Samtals gestir: 68308
Tölur uppfærðar: 18.5.2012 03:37:57
