21.06.2010 15:37
Dagskrá sumarhátíðar
Sumarhátíð CP félagsins
Þá er komið að okkar árlegu sumarhátíð, sem haldin verður í Reykholti
Biskupstungum helgina 2. júlí - 4. júlí nk.
Dagskráin verður sem hér segir:
Föstudagur 2. júlí
Grillið heitt, hver kemur með sinn mat og drykk.
Milli kl. 21 og 21.30 hefst varðeldur og fjöldasöngur.
Laugardagur 3. júlí
11:30 Keyrt upp í Haukadalsskóg og labbað um skóginn þar sem meðal annars eru hjólastólastígar
Boðið upp á ökuferð með "Kubbnum"
Hittum Rauðhettu og úlfinn í skóginum.
Grillaðar pylsur verða í boði milli kl. 13 - 14 í skýlinu Haukadalsskógi
Sund í Reykholtslaug
Hoppukastalar og leiktæki á túninu fyrir framan Aratungu.
Kl. 18 kvöldverður í Aratungu
Eftir matinn verða skemmtiatriði,
Lalli töframaður og Jónsi kemur og syngur nokkur lög.
Semsagt frábær skemmtun - og dans á eftir.
Sunnudagur 4. júlí
Engin formleg dagskrá.
Boðið er uppá stæði fyrir tjaldið eða gistingu í svefnpokaplássi.
Þeir sem ekki vilja gista geta keyrt á staðinn að morgni laugardags
og til baka um kvöldið.
Sama gamla verðið, kr 2.500.- fyrir fullorðna, 1.500.- fyrir 6-12 ára
og frítt fyrir yngstu börnin. Tökum visa og euro.
Innifalið í verðinu er hreinlega allt sem hér að ofan er talið þ.e. tjaldaðstaða eða gisting í svefnpokaplássi í Reykholtsskóla, grillaðstaða
á föstudag, sund, glæsilegur kvöldverður, skemmtun og dans.
Skráning er hafinn og fer fram í gegnum tölvupóst, í póstinum þarf að koma fram nafn þess sem pantar og hversu margir koma, aldur barna og hvar á að gista. Skráning á að vera búin fyrir 29 júní . Einnig er hægt að skrá sig í síma félagsins 691-8010.
Sjáumst kát og hress, í góða skapinu, í góða veðrinu!!!
