23.04.2010 12:03
Lagabreytingar
Eftirtaldar tillögur að lagabreytingum verða lagðar fyrir aðalfundinn.
4.grein.
Úrsögn úr félaginu skal á sama hátt tilkynna formlega til stjórnar félagsins. Þá telst sá félagi sem ekki stendur í skilum með félagsgjöld til félagsins, sjálfkrafa hættur í félaginu.
Verður
4.grein.
Úrsögn úr félaginu skal tilkynna formlega til stjórnar félagsins.
6.grein.
Félagið starfar í einu lagi fyrir allt landið og skal árlegur aðalfundur þess boðaður öllum félögum skriflega, með bréfi eða rafrænum hætti í samræmi við 8. grein laga þessara. Að auki skal auglýsa aðalfund í a.m.k. einu dagblaði á landsvísu með minnst 7 daga fyrirvara. Aukafundi er heimilt að boða fyrir smærri svæði eftir hentugleika , með þeim aðferðum sem henta þykja hverju sinni, þó þannig að þess sé freistað að ná til allra þeirra félaga sem á viðkomandi svæði búa.
Allir félagar hafa málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á félagsfundum.
Verður
6.grein
Félagið starfar í einu lagi fyrir allt landið og skal árlegur aðalfundur þess boðaður öllum félögum skriflega, með bréfi eða rafrænum hætti í samræmi við 8. grein laga þessara. Aukafundi er heimilt að boða fyrir smærri svæði eftir hentugleika , með þeim aðferðum sem henta þykja hverju sinni, þó þannig að þess sé freistað að ná til allra þeirra félaga sem á viðkomandi svæði búa.
Allir félagar hafa málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á félagsfundum.
