22.03.2010 11:17
Námskeið
Fötlun í listum, menningu og fjölmiðlumÍ samstarfi við Námsbraut í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands | |
|
Námskeiðið er ætlað öllum sem hafa áhuga á að velta fyrir sér birtingarmyndum fötlunar í menningu og listum, og umfjöllun um fötlun í fjölmiðlum. Birtingarmyndir fötlunar er mikilvæg heimild um viðhorf samfélaga til fatlaðs fólks. Innan fræðanna hefur lítil áhersla verið lögð á að skoða samspil fötlunar, menningar og lista ef frá eru taldar þær fræðigreinar er snúa að notkun listgreina í kennslu, þjálfun og endurhæfingu. Sú áhersla er oft í samræmi við hefðbundinn skilning á fötlun sem galla sem þarf að bregðast við að lækna og laga. Með tilkomu fötlunarfræða og nýjum skilningi á fötlun sem leggur áherslu á félagslega þætti hefur áhugi aukist á birtingarmyndum fötlunar í menningu, listum og fjölmiðlaumfjöllun um fatlað fólk. Námskeiðið verður sent um fjarfundabúnað á Fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar svo og á aðra staði sé þess óskað. Athugið við skráningu!
Kennari: Hanna Björg Sigurjónsdóttir, lektor og Kristín Björnsdóttir, aðjúnkt í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands Tími: Mán. 12. apr. og fim. 15. apr. kl. 16 - 19, lau. 17. apr. kl. 9 - 12, mán. 26. apr. og fim. 29. apr. kl. 16 - 19 (5x) Verð: 29.900 kr. Staður: Endurmenntun, Dunhaga 7 Frekari upplýsingar og skráning eru hjá www.endurmenntun.is eða í síma 525-4444 | |
