17.01.2012 15:57

Reiðnámskeið

Reiðnámskeið fyrir börn og ungmenni með fötlun

Hestamannafélagið Hörður í Mosfellsbæ býður upp á reiðnámskeið fyrir börn og ungmenni með fötlun.

Hestamannafélagið Hörður í samstarfi við Hestamennt ehf. býður upp á 5 vikna reiðnámskeið í reiðhöll Harðar í Mosfellsbæ.  

Eftirfarandi námskeið eru í boði vor 2012 :

Námskeið 1 : 16.jan - 13.feb

Mánudagar kl. 14:45 - 15:45. 5 skipti í senn

UPPBÓKAÐ!

 

Námskeið 3 : 20.jan - 17.feb

Föstudagar kl. 14:45 15:45. 5 skipti í senn

20.jan, 27.jan, 3.feb, 10.feb, 17.feb.

 

Námskeið 4 : 20. feb - 19.mars

Mánudagar kl. 14:45 - 15:45 . 5 skipti í senn

20.feb, 27.feb, 5.mars, 12.mars, 19.mars.

 

Námskeið 6 : 24.feb - 23.mars

Föstudagar kl. 14:45 - 15:45. 5 skipti í senn

24.feb, 2.mars, 9.mars, 16.mars, 23.mars

 

Námskeið 7: 26.mars - 30.apríl

Mánudagar kl. 14:45 - 15:45. 5 skipti í senn

26.mars, 2.apríl, 16.apríl, 23.apríl, 30.apríl

 

Námskeið 9: 30.mars - 4.maí

Föstudagar kl. 14:45 - 15:45. 5 skipti í senn.

30.mars, 13.apríl, 20.apríl, 27.apríl, 4.maí.

 

ath: hugsanlega verða miðvikudagar bættir inn í í vetur.

 

STEFNT ER Á AÐ HALDA KEPPNISMÓT Í MAÍ 2012 FYRIR ÞÁ SEM HAFA ÁHUGA!

 

Fyrir hverja er námskeiðið:

Öll börn og ungmenni sem við einhvers konar fötlun eða skerta getu að stríða vegna sjúkdóma eða af öðrum ástæðum og sem hafa áhuga á að umgangast hesta eða vilja kynnast hestamennsku.

 

Markmið námskeiðsins:

v  Eiga frábæra stund saman í skemmtilegur umhverfi

v  Geti umgengist hesta af öryggi og óttaleysi

v  Að kynnast hestinum og læra undirstöðuatriði í umhirðu hestsins.

v  Lært undirstöðuatriði í reiðmennsku eftir getu hvers og eins

v  Auka sjálfstæði og færni í samskiptum við hesta

v  Að bæta líkamsvitund

v  Að auka samhæfingu handa, fóta og skynfæra.

v  Styrkja leiðtogahlutverk í samskiptum við hestinn.

 

Lagt er áhersla á fjölbreytni og að allir nemendur fái sem mest út úr námskeiðinu eftir þörfum hvers og eins.

 

Kennslan er í höndum reyndra leiðbeinanda með margra ára reynslu í reiðkennslu fatlaðra, sjúkraþjálfari verður til taks sem og aðrir aðstoðarmenn eftir þörfum.

 

Hvað er innifalið í námskeiðsgjaldi:

Öll kennsla og kennslugögn

Lagðir eru til hestar fyrir hvern og einn sem og allur útbúnaður til reiðar þar á meðal sérsmíðaðir hnakkar og annar útbúnaður eftir þörfum.

Allir þátttakendur fá viðurkenningarskjal í lok námskeiðs.

 

Námskeiðsgjald er 18.000 kr.

 

Frekari upplýsingar og skráning er á www.hordur.is eða hjá

Auði G. Sigurðardóttur  - s: 8997299 eða 8986017

 

Netfang: reidnamskeid@gmail.com

 

Flettingar í dag: 16
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 173
Gestir í gær: 34
Samtals flettingar: 271695
Samtals gestir: 68308
Tölur uppfærðar: 18.5.2012 03:16:28