Skip to main content
Fréttir

Aðalfundur CP félagsins

By mars 30, 2022No Comments

Aðalfundur CP félagsins verður haldinn fimmtudaginn 28. apríl 2022 kl. 20. Fundurinn verður haldinn í Sjónarhóli, Háaleitisbraut 13, 4. hæð. Fundurinn er opinn öllum félagsmönnum.

Dagskrá aðalfundar:

  1. Skýrsla stjórnar CP félagsins fyrir liðið starfsár
  2. Afgreiðsla reikninga síðasta reikningsárs
  3. Lagabreytingar
  4. Lögð drög að starfi félagsins
  5. Ákvörðun árgjalds félagsmanna fyrir næsta ár
  6. Kosning stjórnar og skoðunarmanns reikninga
  7. Mannefli, styrktarsjóður
  8. Önnur mál

Lagabreytingum skal skilað inn skriflega minnst 7 dögum fyrir aðalfund. Skila má tillögum á netfangið cp@cp.is eða beint til stjórnarmanns. Tillögur að lagabreytingum verða síðan birtar á vefsíðu félagsins, cp.is minnst 5 dögum fyrir aðalfund.

Í samræmi við lög félagsins er hluti stjórnar kosinn annað hvort ár. Á þessum aðalfundi verður kosið um formann og þrjú sæti í stjórn. Þrír aðrir stjórnarmenn sitja samkvæmt umboði í ár til viðbótar.